Í ár mun stigatalningin breytast örlítið þar sem Nordic Winner sýningin í Noregi verður haldin helgina 14.-16. nóvember sem er helgin eftir nóvembersýningu HRFÍ, sem er 8.-9. nóvember, og því þarf að ákvarða landsliðið fyrir nóvembersýninguna. Í ár munu því fyrstu þrjár sýningar HRFÍ gilda til stiga inn í landsliðið, þ.e. efstu fjórir í eldri flokki eftir septembersýningu HRFÍ munu mynda lið Íslands á Nordic Winner 2014. Allar fjórar sýningar HRFÍ munu hins vegar ákvarða stigahæstu sýnendurna yfir árið og hverjir munu verða fulltrúar á Crufts, heimssýningunni og Evrópusýningunni. Stigatalning í yngri flokki mun haldast óbreytt.
-Stjórn Unglingadeildar HRFÍ Stigahæstu sýnendurnir árið 2012 voru eftirfarandi í eldri og yngri flokki:
Eldri flokkur: 1. Brynja Kristín Magnúsdóttir - Crufts + Nordic Winner 2. Erna Sigríður Ómarsdóttir - Heimssýningin + Nordic Winner 3.-4. Theodóra Róbertsdóttir - Evrópusýningin + Nordic Winner 3.-4. Elísabet Ásta Guðjónsdóttir - Nordic Winner Á nóvember sýningunni kepptu Theodóra og Elísabet í bráðabana um hvor myndi fara á evrópusýninguna og bráðabanann dæmdi Ole Staunskjær og Theodóra vann bráðabanann. Yngri flokkur: Ingunn Birta Ómarsdóttir og Berglind Gunnarsdóttir eru stigahæðsar í yngri flokki árið 2012 Við óskum þeim öllum til hamingju og vitum að stelpurnar sem fara út að keppa munu vera okkur til sóma. Í ár eru það Theodóra Róbertsdóttir, Elísabet Ásta Guðjónsdóttir, Erna Sigríður Ómarsdóttir og Brynja Kritsín Magnúsdóttir sem skipa Nordic Winner lið Íslands sem keppir í ungum sýnendum á Nordic Winner þann 4. nóvember n.k. Þjálfari liðsins er Auður Sif Sigurgeirsdóttir eins og undanfarin ár. Stelpurnar eru nú byrjaðar að æfa sig með tegundirnar sem þær völdu fyrir keppnina. Við óskum þeim góðs gengis á Nordic Winner og við vitum að þær munu verða Íslandi til sóma. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|